Hátíðaís
January 20, 2019
Hátíðaís
Innihald
- 4 eggjarauður
- 4 msk sykur
- 1 msk vanillusykur
- 1/2 ltr rjómi
- 50 gr Toblerone súkkulaði
- 50 gr heslihnetur (má sleppa)
Aðferð
– Stífþeyta saman eggjarauður og sykur og bæta svo vanillusykri saman við.
– Stífþeyta rjómann og blanda honum varlega við eggjahræruna.
– Saxa súkkulaði (og hnetur ef eru) og setja í blönduna.
– Hella blöndunni í 1 lítra form og frysta.
– Taka þarf ísinn tímanlega úr frysti. Losa ísinn úr forminu þannig: Dýfa forminu augnablik í heitt vatn og hvolfa úr forminu á disk eða fat. Gott að leyfa ísnum að þiðna í 5-10 mín áður en borinn er fram.
Mikið ofboðslega góður ís!
Reyndist vera algerlega laus við nálar, og ekki eins stífur og venja er til með heimalagaðan ís.
Kærar þakkir til frúarinnar á barnalandi sem sendi þessa uppskrift.
Áhugaverðar uppskriftir
No Results Found
The page you requested could not be found. Try refining your search, or use the navigation above to locate the post.
0 Comments