Smákökur Jólasveinsins
January 20, 2019
Smákökur Jólasveinsins
Innihald
- 2 og 1/2 dl mjúkt smjör eða smjörlíki
- 2 dl sykur
- 2 dl púðursykur
- 1 egg
- 5 dl hveiti
- 1 tsk matarsódi
- 1/2 tsk salt
- 2 og 1/2 dl saxaðar hnetur (valhnetur, pekanhnetur eða heslihnetur)
- 300 gr siríus konsum suðusúkkulaði
Aðferð
– Hitið ofninn í 190°C.
– Þeytið saman smjör, sykur og púðursykur.
– Bætið egginu útí og hrærið vel.
– Bætið hveitinu, matarsódanum og saltinu í deigið og hrærið.
– Setjið hneturnar og súkkulaðið útí og setjið deigið á plötu, sem klædd er með bökunarpappír.
– Notið teskeið til að móta kökurnar og hafið 5 cm. á milli.
– Bakið í 8 – 10 mín.
– Kælið kökurnar á rist og geymið í lokuðu íláti.
Þessi uppskrift er ein af þeim uppskriftum sem hafa verið notaðar fyrir einhver jólin. Kökurnar eru mjög auðveldar og fljótlegt að útbúa þær.
Reyndar hverfa þær líka mjög fljótt!
0 Comments